Jóhanna í Danaveldi
15.07.2007 01:03:05 / johannagu

ekkert

jæja ég er búin að vera ekkert smá léleg að blogga og ég reyni kannski að blogga eitthvað bráðum en ég ætla allavegana að setja inn myndir bráðum frá útilegu og djammi og svona skemmtilegu;)

Later Jóhanna:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 20:32:50 / johannagu

Fallhlífarstökk

Ég er að fara í fallhlífarstökk á morgun:D get ekki beðið það verður ábyggilega geggjað:)

Við vorum að búa til myndband fyrir morgunsamkomu í gær og í dag og það er ekkert sérlega gott veður hérna núna, leiðinlegt að segja, og við vorum búin að ákveða að hafa myndbandið um góð sumar - og böðunarráð. Svo að við erum eiginlega bara að gera grín að þessu og gera um dansk sumarveður. Í gær var ekki sól og smá rigning, ekkert voða sumarlegt, en ég lág semsagt á bikiní úti í "sólbaði" á meðan þau hin voru að spila kubbl í þvílíkt hlýjum fötum. Svo hoppaði ég af 10 metra pallinum í sundlauginni (2 sinnum:D ýkt stolt af sjálfri mér) og svo tókum vð upp þar sem að ég var í sundlauginni og bikinítoppurinn minn var fljótandi við hliðina á mér.....sem sagt við mælum ekki með því að maður hoppi af 10 metrunum í bikiní:) en þetta var ekkert smá gaman. Þegar við erum búin með myndbandið þá kannski set ég það inn á netið:D

Ekki meira í bili þarf að fara að sofa. Þarf að vakan kl: 6 í fyrramálið til að fara að stökkva:haha: Það er nú ekki oft sem að ég vakna svona snemma á laugardögum...
Svo er það líka DM og banketið á morgun þannig að nóg að gerast og lítur allt út fyrir að þetta verði góður dagur:D

Jóhanna


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 21:46:49 / johannagu

páskafrí, NM, Århus, Silkiborg, frábært veður og margt fleira.

Ok svona til að byrja með þá langar mig bara að segja sorry við þá sem að nenna að skoða þessa siðu mína hvað ég er ógó lélega að koma með færslur reyni að bæta úr þessu. ( lofa samt engu)

Páskafrí:  Það var alveg yndislegt, gott veður í DK eins og venjulega. Við vorum bara eitthvað 12 nemendur eftir í öllum skólanum svo að við höfðum það mjög gott, fengum góðan mat og kökur eða snakk á kvöldin. Það var sofið út svo var kannski farið og eitt 2 tímum í fimleikasalnum og leikið sér á trampólinunum. Svo lékum við okkur úti í kubbl og fleiru og svo var kvikmyndamaraþon á kvöldin. Við lágum uppí í sjónvarpsherbergi með dýnur og skjávarpa og horfðum á myndir og svo sváfum við þarna nokkrum sinnum og svona:) þetta var mjög gaman. Ég horfði á eina mynd sem heitir Mighty Ducks íshokímynd (eru 3 svoleiðis til)allir vita hvaða myndir þetta eru, en í einni þeirra þá eru þau (Ducks) að keppa við lið frá íslandi, en það fyndna við það er að þeir eru geggjað að ryena að láta þetta vera trúverðugt að þeir séu íslenskir svo að þeir eru látnir tala smá á íslensku, einn gaurinn segir í byrjun leiksins við einn í Ducks "farðu til fjandans" eg hef aldrei á ævi minni hlegið jafn mikið ég þurfti að husta á þetta 3 sinnum til að skilja hvað hann var að segja hann talaði með svo miklum bandarískum hreim. Mæli með því að þið kíkið á þessa mynd held að þetta hafi verið mynd numer 2.  En já svo skellti ég mér líka til Odense til Hildar og Hjördísar í alveg yndislega máltíð, takk fyrir mig:D

NM - Stokhólm:  Ég get nú ekki sagt annað en að ég hafi verið búin að hlakka til að fara þangað í mjög langan tíma.  Ferðin hófst kl:16 á fimmtudegi þá var lagt af stað frá Ollerup og hún endaði kl 7 á föstudagsmorgni  í Stokhólm, get ekki sagt að þetta hafi verið eitthvað brjálað skemmtileg ferð enda margir tímar í rútu sem er ekki gaman:P En þegar við komum þá fegnum við okkur morgunmat og svona. Síðan fórum við og kíktum á höllina þar sem norðurlandamótið var haldið, því að strákarnir sem að við gistum hjá þurftu að fara að vinna þar, setja upp áhöld og svona (gistum hjá nokkrum sænskum strákum sem að eru með mér í skólanum). Á meðan þeir voru að vinna þá fórum við og kíktum aðeins í búðir, kom það ekki mikið á óvart;) Þegar þeir voru búnir að vinna þá sýndu þeir okkur aðeins um bæinn. Seinna um daginn fór ég svo og kíkti á Gerplu stelpurnar á æfingu og heilsaði aðeins upp á þær:) ótrúlega gaman að hitta þær allar aftur. Svo um kvöldið var bara tekið því rólega og fengið sér nokkra bjóra.  Þá var kominn laugardagur ok komið að sjálfu mótinu. Ég held að ég hafi bara aldrei á ævi minn öskrað jafn mikið og ég gerði á meðan stelpurnar voru að keppa enda var röddin mín alveg farin á sunnudeginum:P en það var þess virði, þið voruð ekkert smá flottar stelpur og fyrir þá sem ekki vita auðvitið tóku þær gullið heim:DTIL HAMINGJU:haha: Svo var ekki annað að gera en að fagna þessu með góðu banketi. Daginn eftir tók svo við ca. 10 tíma rútuferð fyrir mig, sem var nú ekki það skemmtilegasta en þetta ver nú ekkert eins og EM svo að ég ætla ekkert að kvarta:$

Ein mynd hérna hand Írisi Mist

Íris og Emil á banketinu

Blakmót í Århus:  Ég fór með skólanum til Århus að keppa í blaki, það var mjög gaman þó að ég sé nú afskaplega léleg í blaki þá skemmti ég mér mjög vel. Ég var í mix-liði og það voru 2 þannig lið frá Ollerup og við unnum hitt liðið svo að það var eiginlega bara það eina sem skipti máli það var mjög ljúft(GO TEAM BAJ'S), held samt að við höfum lent í 3. sæti af 7 svo það er ágætt:D Við spiluðum 2 leiki á fimmtudegi og 4 á föstudegi. Eins og sönnum "Ollerup-ingum" sæmir þá skelltum við okkur aðeins út á fimmtudeginum og höfðum það gott fegnum okkur nokkra bjóra og fögnuðum afmælinu hans Andreas. Síðan hitti ég Dagný Ívars. þarna (fyrir þá sem þekkja hana)hún var þarna með öðrum skóla, það var mjög gaman var ekki beint að búast við því að hitta einhvern þarna sem að ég þekkti.

Silkiborg og Ålgård:  Á miðvikudaginn síðasta fórum við til Silkiborg til að sýna, það var bara mjög gaman. Við sváfum þar í fimleikasalnum og svo eiddum við meginpart fimmtudagsins þar. Við fórum niður að einhverju vatni og fórum á kanu sem var mjög gaman, mínum bát var velt, en það var bara gaman svo eftir það þá lágum við bara í sólbaði og létum okkur þorna:D Síðan var haldið til Ålgård til að sýna, eftir sýninguna var svo bara haldið heim á leið.

Við fegnum svo frí á föstudeginum (4.maj) og veðrið var alveg yndislegt svo að það var ekkert annað í stöðunni en að fara og kaupa sér bjór og taka því rólega. Við fórum niður að vanti sem að er hérna rétt hjá, tekur svona 10 min að labba þangað og sátum þar fegnum okkur bjór og nutum veðursins.  Svo fórum við heim í kvöldmat og fórum svo aftur þangað um kvöldið og fengum okkur meiri bjór:D

Ég og Andreas

Á laugardeginum þá var veðrið alveg yndislegt, ég lág og sleikti sólina frá 11 til 16. við lágum bara úti á grasi og vourm að hlusta á tónlits og að spila og leika okkur svo fórum við líka í sundlaugina nokkrir sem að hoppuðu af 10 m pallinum, ekki ég samt verð að mana mig upp í það áður en að ég hætti:S Mér tókst samt að meiða mig, alveg týpiskt ég:P var að fara upp úr sundlauginni og rann til og rak sköflunginn í stálið á endanum á sundlauginni og fékk soldinn skurð á fótinn er í rauninni með smá holu í löppinni, það var ekkert smá vont en er allt í góðu núna, maður verður bara að bíða eftir að þetta grói......það er eitthvað með mig, danmörk og skurði:$

En svo á morgun eru hellingur af efterskolekrökkum (krakkar í 9-10 bekk) að koma hingað, ég þarf að vera klædd sem ofurhetja, það verður eitthvað gaman að sjá og svo sýnum við fyrir þau og þau sýna líka og eitthvað svona.

Svo á laugardaginn næsta þá er ég að fara í fallhlífarstökk get ekki beðið það verur ábyggilega geggjað:D og svo er líka 2 umferð af danska meistarmótinu og ætla ég að fara að horfa á og svo er partý eftir það og erum við ýkt mörg úr Ollerup að fara svo að það verður ábyggilega ýkt gaman.

Sigurveig ástin mín farðu vel með þig og láttu þér batna:*

Er búin að setja inn eitthvað af nýjum myndum undir Ollerup-Myndir stendur nýtt fyrir aftan... Kveð að sinni, endilega kommentið:)

Jóhanna

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 09:40:28 / johannagu

Allt að gerast:)

Það er nú margt skemmtilegt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast:)

Á föstudaginn síðasta fór ég til Odense til Berglindar frænku. Mamma hennar var í heimsókn, hún kom með eitt stykki dýrindis lambanlæri og borðuðum við það með bestu lyst. En ég verð samt að taka það fram að sósan var alvg sérstaklega góð veit ekki afhverju hún var bara alveg æðisleg;)  Svo eins og sönnum íslendingum sæmir skelltum við okkur í bæinn:)  En ég þurfti reyndar að taka lest aftur til Ollerup kl:6:35 þar sem að ég þurfti að mæta í tíma kl: 8 svo að það var bara farið beint úr bænum í lestina;) En ég svaf reynad aalveg 30 mín í lestinni svo að það var allt í góðu.

Ég þurfti að vera í tímum til 12, við vorum að læra hluta af því sem að við sýnum í lokinn:) en þá var bara lítið annað að gera heldur en að fara að sofa og safna kröftum fyrir kvöldið því það var partý í skólanum.  Ég náði alveg heilum 3 tíma svefn:S  En partýið var mjög skemmtilegt dansaði alveg helling:)

Ég ákvað reyndar að fara ekki í bæinn þetta kvöldið því að ég var svolítið þreytt, en það var mjög fínt að vera bara eftir í skólanum, vorum bara eitthvað að chilla og tala við fólk og svona. Síðan skelltum við okkur reyndar í sund......;) það var mjög gaman vorum eitthvað 7 manns.

En í maí verður einhver svokölluð Emne uge og áttum við að velja eitthvað sem að við vildum gera og ég komst að því í gær að ég er að fara til BERLÍN:D:D:D:D:D ÞAð verður geggjað:)

En allavegna þá er næsta við "praktik" uge (veit ekki hvernig ég skrifa það) þar gat maður annaðhvort farið í Efterskole eða verið eftir í skólanum að kenna helling af brjáluðum 10-11 ára krökkum fimleika og ýmislegt. Ég verð eftir í skólanum, það verður ábyggilega ýkt fínt.

En í kvöld er ég svo bara að fara aftur til Odense til Berglindar, hún er að halda partý og hellingur af íslendinum að koma þangað svo máður verður nú að kíkja, það er ekert eins og að djamma með íslendingum:haha:

En páskarnir eru alveg að koma og ég er búin að fá páskaegg sent til mín svo að það verður gaman:)

So er alltaf að styttast í NM:) bara 3 vikur þangað til að maður verður í Stokholm:D

Hef nú ekki mikið meira að segja bið bara að heilsa öllum á klakanum:*

Jú eitt ég ELSKA Danmörk það er búið að vera svo yndislega gott veður hérna undafarið, reyndar aðeins farið að kólna aftur núna en aldrei eins og á íslandi. Ég sat úti á hlírabol í sólbaði um daginn.....er það eðlilegt í mars......:)

Jóhanna


» 13 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 22:00:26 / johannagu

..

Vá ég er svo lélegur bloggari.....nenni aldrei að skrifa:S

En já það er alveg ýkt langt síðan að ég skrifaði síðast og ýmislegt búið að gerast:D

Þar síðasta laugardag var partý hérna í skólanum, Hollywood partý, ég ásamt 4 öðrum stelpum vorum Spice Girls:)  Ég var Baby spice.  Við sýndum dans við Spice Girls lag og vorum ekkert smá flottar;) set kannski inn myndband af því seinna:)

En já partýið var ýkt gaman að vanda og svo var heldið í bæinn eftirá. Ég kom heim kl:7:308| en ég ákvað þá bara að vaka í klukkutíma í viðbót og fara í morgunmat og fara svo að sofa:D  Svaf svo eiginlega bara á sunnudeginum og horfði á videó;)

Svo var síðast vika nú eiginlega bara tekin með ró horft mikið á videó og slappað af. En svo kemur helgin og þá er tekið á því;)
Það var fríhelgi hérna í skólanum sem að þýðir að það ekkert að gerast í skólanum frá 4 á föstudegi þangað til á mánudasgmorgun svo að næstum allir danirnir fara heim svo að við erum alltaf ýkt fa í skólanum sem að er bara mjög fínt rólegt og næs.  Það er líka gaman því þá þegar við förum að djamma þá eru ekki alltof margir.
Við byrjuðum bara eins og vanalega á Kahytten sem er bar í Svendborg, bænum við hliðina á Ollerup sem að við djömmu alltaf í, þessi bar er ýkt næs því að hann er alltaf bara fullur af fólki úr Ollerup eiginlega enginn annar þarna.  Svo var farið á 2 aðra staði þar sem að maður gat aðeins dansað og svona.
En annars bara mjög skemmtilegt kvöld:haha:
Vorum að fíflast svolítið mikið þetta kvöld, mjög gaman:)

Svo vorum við núna að kveðja 2 nemendur frá Japan sem að eru búnir að vera hérna síðan í haust þeir eru að fara heim eftir 2 daga....fengum köku og svona:)

En tíminn líður svo hratt hérna ég er búin að vera hérna í 2 mánuði...ég eiginlega bara trúi því ekki. Mánuður í norðurlandamótið og þá er ég að fara til Stokholms að horfa:D það verður ýkt gaman ætla ábyggilega að fara þangað á miðvikudeginum svo að maður geti kannski aðeins skoðað sig um og kannski djammað eða eitthvað:)

En ég verð að fara að sofa núna, er alltaf svo þreytt á daginn:P 
Steplur gangi ykkur ýkt vel að keppa um helgina ég mun hugsa til ykkar:haha:

Jóhanna


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 07:22:43 / johannagu

.

Jæja ég vafr bara ap koma hiem og það er morgun matur eftir 10 mínútur svo ég þurfti bara að finna eitthvað að gera í 10 mín  kem með færslu seinna í dag eða á morgun;D

Kveðja  

Súper hressa Jóhanna:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 22:31:48 / johannagu

.....

Jæja það er eitthvað verið að pressa á mann að koma með nýja færslu......

Það er nú ekkert voða mikið búið að gerast hjá mér síðan síðast tók helgina bara rólega, reyna að jafna sig eftir veikindi í síðustu viku.  En maður er svona allur að komast í lagið aftur:D 

Á sunnudaginn var samt haldið upp á Fastelavn sem að er svona eins og öskudagur hjá okkur. Við mættum öll í búningum sæt og fín, ég var köttur. Það eru alveg vandræði þegar maður á eitthvað að fara að klæða sig í einhverja búninga og eitthvað því að ég er ekki með neitt svoleiðis, þegar maður getur bara flogið með einhver 20 kg þá er grímubúningur ekki það fyrsta sem að fer ofaní tösku:|

En fyrst var kötturinn sleginn úr tunnunni sem var mjög gaman það var reyndar bara nammi inní tunnunni, enginn köttur en það er nú ekkert verra;) og svo fengum við einhverja sérstaka fastelavnssnúða, þeir voru bara nokkuð góðir;)  síðan fórum við aðeins að fíflast í salnum leika okkur á stóru trampólinunum....Set inn myndir fljótlega8)

En um næstu helgi verður gestahelgi hérna, allir mega bjóða gestum og það verður einhver sérstök dagskrá og eitthvað8| Ég er að spá í að búa mér til eitt stykki ímyndaðan vin, allir eiga að kynna vin sinn og e-ð og það verður gegðveikt leiðinlegt að hafa engan vin....

En já svo verður náttúrulega partý á laugardagskvöldinu og þemað er Hollywood maður á að klæða sig upp sem einhver stjarna eð persóna. Þá kemur upp sama vandamálið og ég talaði um á áðan ÉG ER EKKI MEÐ NEIN FÖT HÉRNA:evil: Er einhver með einhverja snilldar hugmynd fyrir mig???  Endilega komið með hugmyndir vil fá allar hugmyndir sem að þið hafið:haha:

Eitt að lokum stelpur ógeðslega mikið til hamingju með Bikarmótið er ýkt stollt af ykkur og hlakka ekkert smá mikið til að koma að horfa á ykkur á NM:haha:

Jóhanna


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 07:54:42 / johannagu

Hæhæ

Jæja þá er maður búinn að búa til bloggsíðu.....

Ég lofa nú engu um það hversu dugleg ég verð að skrifa en ég ætla allavegna að vera dugleg að setja inn myndir.

En já það er nú margt búið að gerast hérna vð erum búin að djamma alveg helling, svo var OD-vikan og OD-dagurinn í síðustu viku sem var alveg ýkt gaman hellingur af fimleikasýningum á laugardeginum (OD-dagurinn) og það var alveg hellingur af fólki hérna. Mæja kom hingað að horfa og náttúrulega að djamma. Svo var svaka djamm um kvöldið, kom heim um 8 leytið, það var ýkt gaman.:haha:

Á fimmtudaginn í síðustu viku áttum við öll að hittast í einum af sölunum og svo komu 2 kennarar inn í sundfötum og sögðu okkur að standa upp og setja hægri hönd á vinstra brjóst....Svo byrjuðu þeir að þula upp einhvern texta og við áttum alltaf að herma eftir þeim...

Að við ætluðum að treysta þeim og fylgja þeim inn í nýtt líf sem að byrjaði og endaði í vatni, svo sögðu þeir að það myndi ekki líta vel út fyrir strákana aðeins 2-3 cm en að stelpurnar myndu vera geðveikt flottar og meðan annar kennarinn sagði það þá benti hinn kennarinn á gerivörturnar.....

Þetta var ýkt fyndið svo sögðu þeir okkur að við værum að fara að hoppa út í sjóinn:)

Það var ekkert smá kalt:o en það var samt gaman, fékk samt skurð undir fótinn:frown:

Síðan fórum við líka til Noregs í skíðaferð sem að var mjög gaman, ég var á snjóbretti og ég held að ég hafi aldrei dottið og fengið jafn margar marbletti á æfi minni.....

En núna sit ég bara í tíma sem að ég skil ekkert í svo að ég ákvað bara að taka tölvuna mína með mér til að hafa eitthvað að gera.

En já það var valentínusardagur um daginn og nokkrar stelpur bjuggu til einhver svona hjörtu og einhvern texta og settu á hurðarnar hjá öllum strákunum, sögðu eitthvað tak fyrir að vera eins og þið eruð Ollerup væri ekki eins án ykkar.

Daginn eftir var kominn miði á hurðarnar hjá öllum stelpunum sem að á stóð: 

Takk fyrir þessi fallegu orð Ollerup væri heldur ekki sá sami án ykkar en við hefðum frekar viljað fá blæs i pomfritten:) og svo límdu þeir 2 franskar fyrir neðan, og fyrir þá sem að vita ekki hvað blæs i pomfritten þýðir þá þýðir það blowjob.....

En allavegana tíminn fer að vera búinn reyni að skrifa fljótlega aftur.  Er að fara í sundtíma og við erum að fara í fatasund:)

Jóhanna


» 10 hafa sagt sína skoðun


NM �?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?�š�?�??�?­ Stokholm
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1072 dögum
RSS tengill